Framsóknarflokkinn skortir félagslegan þroska

Þar sem ég þekki margt prýðisfólk sem hefur starfað í Framsóknarflokknum þykir mér sorglegt að horfa upp á þann villikattarslag sem ríkir innan dyra.  Framsóknarmenn virðast ekki kunna þann góða sið að takast á um menn og málefni á siðmenntaðan hátt, komast að niðurstöðu og standa síðan saman um hana út á við eins og nauðsynlegt er í öllu félagsstarfi.

Sé horft til þeirra subbulegu átaka sem átt hafa sér stað innan flokksins undanfarin ári, sérstaklega í Reykjavík, þykir mér eiginlega merkilegt að flokkurinn skuli þó hafa fengið 2,9% fylgi.

Rifjum aðeins upp helstu hnífstungur síðasta kjörtímabil, raðað út frá niðurstöðu prófkjöra:

2006-2010:

1. Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Rvk, stakk oddvitann Björn Inga Hafnsson í bakið og Bingi yfirgaf flokkinn.  Á svipuðum tíma var Guðjón Ólafur veginn (man ekki aðdragandann að því)

2. Anna yfirgaf flokkinn í fússi eftir að hafa lent í 2. sæti í prófkjöri

3. Óskar Bergsson, færðist jafnt og þétt upp listann, varð oddviti þegar Bingi og starfaði nokkuð hávaðalaust með Hönnu Birnu seinni hluta kjörtímabilsins.  Fékk fyrir rýting í bakið í næsta prófkjöri.

2010-2014

1. Einar Skúlason, hefur ekki fengið rýting enn en mun væntanlega fá hann fljótlega.  Hann slysaðist hins vegar til að stinga flesta stuðningsmenn flokksins í bakið í oddvitaumræðum á RÚV kvöldið fyrir kostningar þegar hann lýsti (uppbyggingar)tímabilinu 1995-2005 sem "ömurlegu" fyrir Framsóknarmenn

2. Guðrún Valdimarsdóttir, "vonarprinsessa Framsóknar", fékk rýting eftir að í ljós kom að nafn eiginmanns hennar fannst í smáu letri í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hafði tapað verulegum fjármunum við fall einhvers bankans.

Kosningum varla lokið og þá óskar Guðmundur Steingrímsson eftir viðtali í sjónvarpi til að koma rýtingi í bak formannsins.  Eru ekki haldnir innanflokksfundir til að ræða svona mál???

Er hægt að treysta svona hópi "villikatta" fyrir stjórnun lands og sveitarfélaga?


mbl.is „Svekkelsi og sigrar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband