Sá Hjört með Skagamönnum á ÍR vellinum í gærkveldi í fyrsta sinn í sumar.  Hann kom mér skemmtilega á óvart, virtist vera búinn að tálga af sér 10 kg og var snarpur og hraður - ofan á fína boltatækni og reynslu sem skilaði sér í góðum staðsetningum og fjölmörgum "fiskunum".  Loks notaði hann allt skapið á fremur uppbyggilegan hátt...
Heilt yfir fannst mér hann einn besti maður vallarins og einn af frekar fáum sem sýndu með óyggjandi hætti að þeir ættu heima í efstu deild.  Þótt það hafi dregið af honum átti hann enn kraft í svakalegan sprett upp völlinn á 91. mín. og skildi yngri menn eftir í rykinu.
Ef Hjörtur nær að halda sér í sama formi næsta sumar gæti hann átt a.m.k. eitt gott ár í viðbót meðal þeirra bestu.  Skagamönnum bíður stórt verkefni á næsta ári að tryggja sér sess í efstu deild og veitir ekki af hans hjálp.
P.s. verð annars að taka fram að ég skil ekki af hverju ÍR-ingar eru svo neðarlega í deildinni, þeir sýndu hörkuleik í gær og stóðu fyllilega í toppliði ÍA...
BP
Eins og ég hef áður ritað hef ég ekki verið sérstakur aðdáandi ÓRG í gegnum tíðina en tel rétt að viðurkenna að hann hafi einnig gert margt mjög gott á sínum forsetaferli.
Hann tók mikla áhættu þegar hann neitaði að staðfesta IceSave-lögin.  En í ljósi þeirra jákvæðu afleiðinga af ákvörðun hans sem við stöndum nú frammi fyrir er erfitt að ganga fram hjá honum sem manni ársins 2010.
Margir eru vel að því komnir að vera nr. 2 á þeim lista, t.d. björgunarsveitarmaðurinn frá Akranesi sem bjargaði litla drengnum úr sprungu á Langjökli í byrjun árs, Þorvaldur á Þorvaldseyri sem tók svo keikur á móti náttúruöflunum í sumar, Jón Gnarr sem kom, sá og sigraði í borgarstjórnarslagnum í Reykjavík og fleiri.
Alex Salmond hefur í um 20 ár verið formlegur og óformlegur leiðtogi þjóðernisflokks Skota, the Scottish National Party (SNP).  Sá flokkur hefur barist fyrir sjálfstæði Skota frá Englendingum á þeim forsendum að án formlegs aðskilnaðar læri Skotar ekki að standa á eigin fótum, axla ábyrgð á velferð sinni og hagsæld í stað þess að vera háðir því hvað þingið í London ákveður að skammta þeim hverju sinni.  SNP er mjög hugleikið hve Írum, Norðmönnum og Íslendingum hefur gengið vel frá því að þessar þjóðir hlutu sjálfstæði.
Alex Salmond var einn helsti baráttumaður fyrir því að Skotar fengu sitt eigið þing og heimastjórn árið 1997.  Hann er nú forsætisráðherra heimastjórnarinnar (Scotlands First Minister).
Ein forsenda aðskilnaðar við Englendinga er þátttaka Skota í Evrópusambandinu - þ.e. að Evrópusambandið verði sá pólitíski og efnahagslegi bakhjarl Skota sem Englendingar hafa sinnt hingað til.  Þjóðernissinnaðir Skotar segja því gjarnan: "We are European, not British".
Í kjölfar bankahrunsins hafa Íslendingar tekist á um stjórnfyrirkomulag á Íslandi.
Í áranna rás hafa flest vestræn samfélög þróað með sér útgáfu af "lýðræði" sem kallast "fulltrúalýðræði".  Það felur í sér að þjóðin kýs á nokkurra ára fresti hóp þingmanna sem eru fulltrúar fólksins í landinu.  Helstu ástæður þessa fyrirkomulags, umfram beint lýðræði, eru annars vegar að það er mikið skilvirkara og hins vegar að með ákveðinni fjarlægð fulltrúanna frá almenningi er auðveldara að ná samkomulagi um ákvarðanir sem eru heppilegastar fyrir þjóðina í heild, þrátt fyrir að þær kunni að virðast óþægilegar fyrir hluta samfélagsins á þeim tíma sem þær eru teknar.
Í flóknum vestrænum nútímasamfélögum hefur einnig skapast sú hefð að fulltrúar með líkar skoðanir hafa safnast saman í nokkur lið, stjórnmálaflokka.  Það fyrirkomulag hefur ýmsa kosti, svo sem að fulltrúarnir geta skipt með sér verkefnum og áherslum sem enn eykur á skilvirkni.  Svo er meiri líkur á að ná fram þeim málum sem þessi hópur fulltrúa hefur sameinast um - "sameinaðir stöndum við - sundraðir föllum við" o.s.frv.
Þessi hópur hefur aftur það hlutverk að koma sér saman um heppilegustu leiðina til að stjórna landinu.  Allir fulltrúarnir hafa rétt á að hafa eigin skoðun og leggja fram tillögur en síðan er það meirihluti fulltrúanna sem ræður.  Þetta fyrirkomulag krefst mikils félagslegs þroska af þeim einstaklingum sem veljast til að vera fulltrúar þjóðarinnar.  Það er eðlilegasti hlutur að tekist sé á um lausnir og ákvarðanir en að lokum verða fulltrúarnir að sameinast um þá ákvörðun sem meirihlutinn tekur.
Í hópíþróttum er eðlilegt og jafnvel æskilegt að tekist sé á um leikaðferðir og leikmannaval á æfingum og í búningsherbergjum.  En þegar inn á völlinn er komið er það ekki vænlegt til árangurs og þeim leikmönnum sem ekki fylgja leikskipulaginu, þjálfara og fyrirliða er því er strax skipt út.
Til að þjóðin geti áhyggjulaust stundað sitt daglega líf þarf hún að skilja eftir hvaða leikreglum fulltrúarnir sem hún valdi til að stýra landsmálum vinna eftir.  Eru það leikreglur einstaklingsíþrótta eða hópíþrótta?  Í flestum íslenskum stjórnmálaflokkum liggur þetta ljóst fyrir en ekki hjá VG og á meðan svo er fyrirkomið að óvissa ríkir um félagslegan þroska innan annars stjórnarflokksins getur þjóðin ekki verið áhyggjulaus.
Það gleymist í þessari umfjöllun að einhverjir þurfa að borga brúsann.
Stór hluti fjölskyldna landsins fá litla eða enga leiðréttingu á stökkbreyttum lánum en fær að borga brúsann í gegnum stöðugt hækkandi skatta og skerðingu á þjónustu.
Þeim sem skulduðu "hóflega" mikið í húsnæði sínu og hafa misst all það stóran hluta af því fé sem lagt var í húsnæðiskaup 2004-2008 er refsað harkalega - aftur!
Íslenskufræðingurinn Svandís Svavarsdóttir hefur óneitanlega svolítið sérstakan ráðherraferil að baki.  Alla jafna heyrist ekki mikið í henni en af og til gýs hún upp með miklum látum.  Ber þar helst að nefna nokkur hitamál:
1. Afsalaði Íslendingum kolefnislosunarkvóta að andvirði tuga ef ekki hundruða milljarða sem Íslendingar höfðu barist fyrir árum saman á grundvelli svokallaðs "íslensks ákvæðis" í Kyoto-samkomulaginu - þvert á álit sérfræðinga og fagaðila hér á landi
2. Úrskurðaði að línuframkvæmdir á Reykjanesi skuli í sameiginlegt mat - þvert á álit Skipulagsstofnunar og annarra fagaðila, enda lítil sammögnunaráhrif.
3. Setti stífustu reglugerð heims fyrir losun á brennisteinsvetni frá jarðvarmavirkjunum, ársmeðaltal undir 5 mg/m3 og dagsmeðaltal undir 50 mg/m3 (álíka stíft og í nágrenni Napa Valley), sem setur hagkvæmni margra góðra virkjanakosta í uppnám - þvert á álit Umhverfisstofnunar, World Health Organisation (WHO) og annarra sérfræðinga sem lögðu til að þessi mörk væru 150 mg/m3 (og þótti stíft).
4. Berst á móti því að Magma Energy fái að bjarga HS Orku og ber við ólögmæti kaupsamninga - Þvert á álit tveggja nefnda og fjölda lögfræðinga
5. Hafnaði að staðfesta aðalskipulagsbreytingar í Flóahreppi og Skeiða og Gnúpverjahreppi þar sem framkvæmdaraðili hafði aðstoðað sveitarfélögin við að greiða útlagðan kostnað vegna breytinganna, en fordæmið stöðvaði stórframkvæmdir eins og virkjanir, vegaframkvæmdir o.fl. um allt land - þvert á álit dómstóla.
...og svo var íslenskufræðingurinn Svandís ein þeirra sem hneykslaðist á því að dýralæknir hafi verið gerður að fjármálaráðherra!
Langskólagengið barnafólk á aldrinum 30-50 ára, t.t.l. nýlega komið út á vinnumarkaðinn er þjóðfélagshópur sem kemur mjög illa út úr kreppunni án þess að það komi oft fram í umræðunni.  Þessi hópur kemur seint inn á vinnumarkaðinn en þiggur í staðin hærri tekjur.  Í krafti væntinga um góðar tekjur fjárfesti þessi hópur í húsnæði og bílum á lánum.
- Lækkun á fasteignaverði og hækkun fasteignalána hefur þurrkað upp allan sparnað sem fólk hafði safnað í útborgun og jafn vel gott betur.  Tekjuháar fjölskyldur með skuldir langt umfram eignir fær enga skuldaleiðréttingu heldur mun þurfa að berjast við háar afborganir það sem eftir er af starfsæfinni.
- Veik króna og hækkaður virðisaukaskattur kemur hart niður á barnafjölskyldum sem þurfa að reiða sig á innfluttar bleyjur, barnamat, barnaföt og skólavörur.
- Hækkun á tekjusköttum bitnar harðast á hátekju-launafólki.
- Aftenging fæðingarorlofsgreiðslna gerir skuldsettum menntuðum hjónum erfitt að eignast börn.
- Aukin tekjutenging bóta, svo sem vaxtabóta og barnabóta, bitnar harðast á hálaunuðu menntafólki sem vinnur baki brotnu til að eiga fyrir ört hækkandi reikningum.
- Hækkun gjalda á ökuteæki og eldsneyti kemur harðast niður á barnafólki sem þarf á stærri ökutækjum að halda.
Stjórnvöld lögðu um 100-200 milljarða króna til að verja sparnað miðaldra og fullorðinna Íslendinga í peningamarkaðssjóðum en þegar húsnæðis- og bílalán barnafjölskylda hækkuð var lítið gert.  Þegar dómur féll um ólögmæti gengistryggðra lána - sem flest voru í eigu barnafjölskyldna á aldrinum 30-50 ára - var alltí einu orðið "réttlætismál" að tryggja að þessi hópur greiddi extra háa vexti í staðin svo bankakerfið tapaði ekki.
Svona fara núverandi (miðaldra) stjórnvöld með komandi kynslóðir!
Órólega deildin í VG sem kúgar ríkisstjórnina hvað eftir annað um þessar mundir hefur mikinn samhljóm með vinstri sinnuðum leiðtogum í Mið- og Suður Ameríku.
Það að "vinda ofan af einkavæðingu" er í raun að þjóðnýta eignir einstaklinga, líkt og Kastró, Hugo Chaves, Evo Morales og fleiri hafa talað fyrir.
En VG reyna gjarnan að villa fyrir um uppruna hugmyndafræðinnar með því að vísa til Noregs.
Olíuvinnsla er Norðmönnum jafnvel mikilvægari en jarðhitanýting okkur Íslendingum.  Norska ríkið á olíuauðlindirnar í norskri lögsögu en leigir olíuvinnslufyrirtækjum nýtingarréttinn til áratuga.
Hverjir eiga norsku olíuvinnslufyrirtækin?  Statoil er stærst og þótt norska ríkið eigi rúmlega helmingshlut er það skráð á hlutabréfamarkað og rekið eins og almenningshlutafélag.  Önnur olíuvinnslufélög eru alþjóðlega, s.s. Shell, BP, Total, Chevron o.s.frv.
Á góðærisárunum fjárfestu bæði íslensku fjarfestingafélögin Atorka og Norvík í norskum olíuvinnslufyrirtækjum.
Norðmenn sjá marga kosti við að fá alþjóðleg fyrirtæki að olíuvinnslu - þekkingu, fjármögnun, áhættustjórnun - ólíkt VG.
Alveg rétt mat hjá Jóni að samningaviðræður við EU séu ekki líklegar til að bera árangur - ekki með hann í brúnni.
Í þennan stól þarf nútímalega manneskju sem hefur alþjóðlegt sjálfstraust, trúir á sjálfan sig, verkefnið og framtíð Íslands.  Svo þarf að vera verulegur töggur í viðkomandi, hann/hún þarf að hafa kjark til að standa upp og tala fyrir sínum málstað þótt á móti blási.
Hvernig væri að fá Ragnheiði Ríkharðsdóttur í hlutverkið?
Það jákvæða við ákvörðun ríkisstjórnarinnar í dag er að reyna skal að marka heilsteypta stefnu um eignarhald á auðlindum og fyrirtækjum sem framleiða, flytja og dreifa raforku.  Ekki bara klístra einum pólitískum plástri á málið af því að fyrirtækið heitir Magma og er frá Kanada.
Orkugeirinn er í heildina mörg hundruð milljarða króna virði svo það er stórmál ef ríkið ætlar sér að eiga hann til lengdar.  Ólíklegt er t.d. að orkufyrirtæki í opinberri eigu hafi bolmagn til að fjármagna frekari orkuframleiðsluverkefni á næstu árum, sérstaklega ef ríkið þarf að leggja tugi milljarða í að leysa til sín HS orku og endurfjármagna síðan fyrirtækið í framhaldinu.
Einnig þarf að skoða vandlega hvort og þá hversu stóran hlut er ásættanlegt að einkaaðilar eigi í orkuframleiðslufyrirtækjum?
Í framhaldinu hljóta hins vegar að vakna upp spurningar um stóra samhengið, þ.e. eignarhald í öllum auðlindagreinum.  Er t.d. ásættanlegt að útlendingar hagnist á að eiga hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi?
Jafnvel gætu slíkar spurningar vaknað um eignarhald í landbúnaði.  Nú eru t.d. dæmi um að jarðir sem búa yfir jarðhita og vatnsréttindum séu í eigu útlendra auðjöfra - ætlar ríkið að leysa þær til sín?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með þróun þessa máls á næstu mánuðum.
Það kemur í ljós í hverju málinu á fætur öðru að Vinstri grænir geta ekki tekið erfiðar ákvarðanir.  Hvorki í IceSave, skuldamálum, úrlausn bankanna, ES-málum eða öðru.  Þess í stað er reynt að ýta vandamálunum á undan sér.
Magma og HS málið kristallar þessi vandræði Vg.  Fyrst svaf Steingrímur á HS málinu í heilt ár án þess að aðhafast nokkuð.  Þegar sölusamningur Geysis Green Energy og Magma upp á yfirborðið var málið sett í nefnd.  Þegar nefndin kemur með niðurstöðu á að rannsaka allt söluferlið og helst að senda það í svarthol dómskerfisins það sem það gæti velkst árum saman.
Reynt er að slá ryki í augu almennings með að tala illa um Magma - hið vonda erlenda auðvald sem ætlar að græða á íslenskum auðlindum, spillingu á bak við söluferlið, óeðlilega langan leigutíma á auðlindinni o.s.frv.
En stóra spurningin er ekki hvort kanadíska hlutafélagið Magma fái að eiga HS orku hf, heldur:
- Hver á að eiga orkuvinnslufyrirtæki á Íslandi?
Þjóðin biður eftir stefnumörkun stjórnvalda um hvernig eigi að hátta eignarhaldi orkuvinnslufyrirtækja.  Ætla stjórnvöld að leysa til sín HS eða heimila einkaaðilum að eiga í orkuframleiðslunni að öllu leyti eða að hluta?
Það er kjarni málsins og nú verður Vg að tala skýrt!
Það er svo sem ekki fallegt að skensa Björk - sem er bæði frábær tónlistarmaður og vel meinandi einstaklingur - en ég stenst ekki mátið:
Samkvæmt slúðri síðustu ára hefur sá auður sem Björk hefur safnað á farsælum tónlistarferli farið í eignarhaldsfélag í einhverri skattaparadís svo hún þurfi ekki að borga himinháa tekjuskatta á Íslandi.  Þess vegna birtist nafn hennar aldrei á lista yfir tekjuhæstu einstaklingana á Íslandi.
Ef Björk ætti að kaupa hlut í HS orku þyrfti hún að gera það með kennitölu innan EES, þ.e. stofna skúffufyrirtæki í Svíðþjóð, Lúxemburg eða jafnvel á Íslandi, ef hún fengi 70% kúlulán hér á landi.
En eins og Björk segir sjálf þú vill hún ekki kaupa því hún telur fyrirtækið eigi að vera eign fólksins í landinu.
Björk segist vera á móti einkavæðingu - en hún er nokkrum árum of sein með þær ábendingar.
Það virðist stundum gleymast í umræðunni að HS orka er nú fyrir í eigu Geysis Green Energy og Magma Energy.  Það er tæplega raunhæft að GGE og ME séu tilbúin til að "gefa þjóðinni HS orku".  Er þjóðin tilbúin til að kaupa þá hluti fyrir tugi milljarða úr skuldum vöfnum ríkissjóði (væntanlega til að sameina Landsvirkjun eða Rarik)?  Steingrímur J. Sigfússon er það ekki - hann fékk árs frest en kaus að aðhafast ekkert.
Eitt mikilvægasta hlutverk iðnaðarráðuneytis er að efla iðnað og atvinnu í landinu, þ.m.t. að efla ferðamennsku og stýra nýtingu orkuauðlinda.  Í því felst jafnframt að kynna Ísland sem ákjósanlegan fjárfestingakost - fyrir Magma jafnt sem öðrum.
Iðnaðarráðuneytið getur ekki frekar en önnur ráðuneyti, lagt mat á hverjum þeir eiga að leiðbeina með fjárfestingar á Íslandi.  Annað hvort geta erlendir aðilar fjárfest á Íslandi eða ekki.  Það gengur ekki að eingöngu erlendir "vinir VG" fái að fjárfesta á Íslandi en ekki þeir sem VG uppnefna sem "erlent auðvald".
Í kjölfar bankahrunsins komst HS óbeint í eigu Íslandsbanka sem nú er um 90% í eigu óþekktra erlendra fjárfesta (kröfuhafa).  Ekki kom til greina að Íslandsbanki færi að eiga og reka HS og því óhjákvæmilegt að selja.  Fyrst Steingrímur Joð treysti sér ekki til að kaupa HS þegar það bauðst (t.d. með að sameina Landsvirkjun) var ekki um auðugan garð að grisja þegar kom að sölunni, einkum þar sem núverandi stjórnmáláaástand er ekki vinveitt fjárfestum yfir höfuð.  Ég hef ekki orðið var við annað en að Magma sé prýðilegur kostur í þeirri erfiðu stöðu.  Félagið er skráð á hlutabréfamarkaðinum í Toronto og eignarhaldið er nokkuð gagnsætt.  Stærsti eigandinn er forstjórinn og stofnandinn Ross Beaty með 45% hlut skv. heimasíðu Magma: www.magmaenergycorp.com.  Ákveðnir áhrifamenn innan VG, með Svandísi Svavarsdóttur í fararbroddi, viðrast hins vegar hafa horn í síðu Magma án þess að ástæður þess hafi komið skýrt fram.
Howard Webb stóð sig vel á HM og var vel að því kominn að fá að dæma úrslitaleikinn.
Hollendingar léku mjög fast allt mótið og virtust markvisst yfirtækla andstæðinga sína, þ.e. stíga á ökla og ristar.  Einkum var með ólíkindum hvað "tengdasonurinn" van Bommel komst upp með þennan leik.  Hins vegar féllu Hollendingar með miklum tilþrifum og grétu þjóða mest ef við þeim var stuggað.  Liðið komst upp með að leika stífan varnarleik og sækja á fjórum snillingum og voru eina taplausa liðið þegar kom að úrslitaleiknum.
Dagskipunin var greinilega að verjast framarlega og brjóta miðjuspil Spánverja með því að spila mjög fast.  Dómarinn ætlaði sér að ná tökum á leiknum með gulum spjöldum snemma leiks en lenti í ógöngum þegar leikmenn héldu áfram.  Rauða spjaldið á Heitiga kom kannski ekki fyrir grófasta brotið, snilldarlega fiskað af Iniesta, en Hollendingar voru búnir að safna rækilega fyrir því.
Webb ætlaði sér greinilega ekki að verða minnst fyrir vafasamar vítaspyrnur eða rauð spjöld.  Hann var ekki fullkominn en komst heilt yfir mjög vel út úr afar erfiðum leik.
Það varð víðar en á Íslandi mikið tjón af völdum áhættusækni í bankaheiminum eða því sem kallað hefur verið "ósjálfbær bankastarfsemi".
Björgunaraðgerðir þessara tveggja bandarísku fjármálastofnana einna kostar hvern íbúa USA allt að $1500.  Örvunarpakki stjórnvalda, sem að mestu fól í sér að kaupa verðlaus undirmálslán af bönkum í einkaeigu, kostaði allt að $700 milljarða, eða allt að $3000 á hvern íbúa.  Einnig var bílaiðnaðinum bjargað og á annað hundrað bankar fóru í þrot.  Í heildina er tjónið líklega nærri einni milljón króna á hvern íbúa Bandaríkjanna.
Hér á landi var stofnað embætti sérstaks saksóknara og sett á laggirnar rannsóknarnefnd Alþingis til að rannsaka og ákæra einstaklinga sem kunna að hafa borið ábyrgð á þeim blekkingarleik sem átti sér stað.
En hefur einhver bankastjórnandi, viðskiptajöfur eða stjórnmálamaður í Bandaríkjunum axlað ábyrgð með þeim hætti sem krafist er af íslenskum kollegum þeirra?
Nýjustu fréttir af fjármálalífinu vestra benda þvert á móti til þess að þar ríki "business as usual".