17.8.2011 | 10:01
Hjörtur í toppformi
Sá Hjört með Skagamönnum á ÍR vellinum í gærkveldi í fyrsta sinn í sumar. Hann kom mér skemmtilega á óvart, virtist vera búinn að tálga af sér 10 kg og var snarpur og hraður - ofan á fína boltatækni og reynslu sem skilaði sér í góðum staðsetningum og fjölmörgum "fiskunum". Loks notaði hann allt skapið á fremur uppbyggilegan hátt...
Heilt yfir fannst mér hann einn besti maður vallarins og einn af frekar fáum sem sýndu með óyggjandi hætti að þeir ættu heima í efstu deild. Þótt það hafi dregið af honum átti hann enn kraft í svakalegan sprett upp völlinn á 91. mín. og skildi yngri menn eftir í rykinu.
Ef Hjörtur nær að halda sér í sama formi næsta sumar gæti hann átt a.m.k. eitt gott ár í viðbót meðal þeirra bestu. Skagamönnum bíður stórt verkefni á næsta ári að tryggja sér sess í efstu deild og veitir ekki af hans hjálp.
P.s. verð annars að taka fram að ég skil ekki af hverju ÍR-ingar eru svo neðarlega í deildinni, þeir sýndu hörkuleik í gær og stóðu fyllilega í toppliði ÍA...
BP
Hjörtur: Reikna ekki með að spila með ÍA í úrvalsdeildinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
Hjörtur hefur komið sterkur inn í sumar. 36 ára og er markahæstur í deildinni. Skilur þessa ungu strikera eftir í rykinu.
ÍA er með ótrúlega yfirburði í þessari deild. Höfum misst marga leikmenn undanfarið og nýir að koma inn, enda sést það á síðustu 2 leikjum.
Getum tryggt okkur bikarinn fljótlega. Í þarnæsta leik eða næsta.
ThoR-E, 17.8.2011 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.