7.2.2010 | 22:15
Almennilegt náttúruminjasafn í næstu uppsveiflu!
Er einn af þeim sem hefðu kosið almennilega aðstöðu fyrir náttúruminjar á kostnað glersins utan á tónlistar- og ráðstefnuhöllina Hörpu.
Það verður líklega að bíða næstu efnahagsbólu.
Þorvaldur Björnsson sýnir enn á ný að þar fer ein helsta almúgahetja Íslands. Ítrekað réttur maður á réttum stað. Ég verð illa svikinn ef hann fær ekki fljótlega fálkaorðu um hálsinn. Hann er kannski ekki með doktorspróf í vasanum en framlag hans til uppstoppunar og uppstillingar á dýrum og beinagrindum er ómetanlegt eins og sést kannski best á Hvalasafninu á Húsavík.
Leki í aðalgeymslum Náttúrufræðistofnunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.